Það er Dagur Einhleypra og þá er sko vel við hæfi að leyfa sér eitthvað fallegt og verðskuldað!
Ef það er eitthvað betra en að spara pening þá er það að eignast frábærar hárvörur, í dag er hægt að gera bæði! Allar vörur á 10-30% afslætti til miðnættis 11. nóv!
Síðustu vikur höfum við þurft að treysta á okkur sjálf til að hressa almennt upp á útlitið. En hvað sem þú gerir í þinni heimadekur rútínu, þá mælum við sterklega gegn því að detta í pakkalitina. Við vitum hversu freistandi það er, en það býður bara upp á leiðinlegan vítahring og erfitt verkefni fyrir þinn fagmann þegar að því kemur að stofurnar opni á ný. Hins vegar erum við með aðra skemmtilega lausn sem gerir þér kleift að hressa upp á þinn hárlit eða prófa eitthvað nýtt! Alchemic vörurnar eru hannaðar til þess að bæði hressa við og skerpa hárlitinn og þar með lengja líftíma litarins eða til að breyta um lit tímabundið. Vörurnar henta bæði í litað og ólitað hár. Alchemic línan er 100% vegan og koma sjampóin í 6 mismunandi litatónum og næringarnar í 11 mismunandi litatónum. Alchemic litanæringarnar eiga að hverfa með öllu úr hárinu eftir nokkra þvotta en þó skal fara varlega með aflitað eða mjög ljóst hár. Það hár er mjög opið og getur litur setið fastar í því. Chocolate næringin getur t.d. skilið eftir sig bleikan tón í aflituðu hári.
Upprunalegu litirnir úr línunni eða Alchemic Originals er fyrir náttúrulegt eða litað hár í öllum litum, hönnuð til að ýmist ýkja eða vinna á móti ákveðnum litum eða tónum. Þeir sem eru með kalt, ljóst hár geta spornað gegn gulu tónunum með Alchemic Silver. Þeir sem eru með brúnt hár geta hresst við daufan tón með Alchemic Chocolate og sömuleiðis er hægt að halda rauðum tónum ferskum með Alchemic Copper svo eitthvað sé nefnt.
Alchemic Creative Conditioners er hins vegar hönnuð til að lita náttúrulega eða litað ljóst hár í björtum tískulitum, Pink, Coral, Lavender, Marine Blue og Teal Blue. Þessar skemmtilegu litanæringar eru fullkomnar fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á hárlitnum sínum og vilja prófa sig áfram með pastellitum eða skærum tónum.
Hárnæringarnar eru algjörar rakabombur sem næra og mýkja hárið og skilja það ekki bara eftir með fallegum blæ eða alveg nýjum lit heldur einnig heilbrigt og háglansandi.
Á þessu vefsvæði eru notaðar vafrakökur til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda. KökustillingarSamþykkja
Persónuverndarstefna
Privacy Overview
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.