Lýsing
Frábær tilboðspakki sem inniheldur þrjár vörur til að halda krullum í hárinu allan daginn.
Perfect Ending Hársprey 400ml
GHD Perfect Ending hárlakkið er tilvalið til að klára greiðsluna. Gefur miðlungs hald og auðvelt er að bursta lakkið úr.
Curly Ever After 120ml
GHD Curly Ever After er fullkomið og nauðsynlegt áður en byrjað er að krulla hárið. Krullurnar haldast lengur, með rakavörn og hárið verður ekki klístrað.
Detangling Comb
Gróf greiða sem er tilvalin í að greiða úr liðum til að fá þá náttúrulegri. Einnig er gott að nota hana í blautt hár til að greiða úr flóka.