Lýsing
Repair Conditioner frá HH Simonsen inniheldur míkró prótín sem innihalda hátt hlutfall af keratíni og fara djúpt inn í hárið og styrkja það innan frá. Hárnæringin kemur í veg fyrir brotna og slitna enda og gerir það auðveldara að greiða í gegn um hárið án þess að skemma það. Samsetningin á innihaldsefnum gerir það að verkum að næringin virkar 30% á innra byrði hársins og 70% á ytra byrðið. Næringin byggir hárið upp auk þess sem það mýkir hárið og gefur því lyftingu.
- Uppbyggjandi og verndandi
- Inniheldur keratín og amínósýrur
- Gerir hárið heilbrigðara og gerir það auðveldara að greiða í gegn