Lýsing
Tilboðspakki sem inniheldur þrjár vinsælar vörur úr Repair línu HH Simonsen.
Repair Shampoo Sérstaklega hannað fyrir skemmt eða illa farið hár. Sjampóið inniheldur míkró prótín sem innihalda hátt hlutfall af keratíni og fara djúpt inn í hárið og styrkja það innan frá. Amínósýrur og macadamia- og jojoba olíur næra hárið og styrkja það. Repair sjampóið endurlífgar þreytt og illa farið hár.
Repair Conditioner Inniheldur míkró prótín sem innihalda hátt hlutfall af keratíni og fara djúpt inn í hárið og styrkja það innan frá. Hárnæringin kemur í veg fyrir brotna og slitna enda og gerir það auðveldara að greiða í gegn um hárið án þess að skemma það. Samsetningin á innihaldsefnum gerir það að verkum að næringin virkar 30% á innra byrði hársins og 70% á ytra byrðið. Næringin byggir hárið upp auk þess sem það mýkir hárið og gefur því lyftingu.
Repair Mask Öflug meðferð fyrir þreytt og skemmt hár. Maskinn inniheldur hátt hlutfall af keratín-ríku míkrópróteini og er því hin fullkomna vara til að styrkja hárið. Amínósýrur, shea butter og kókos- og jojoba olíur styrkja einnig og næra hárið auk þess að koma í veg fyrir slitna enda. Repair Mask vinnur 70% á innra byrði hársins og 30% á ytra byrðinu. Gott er að nota næringu á eftir.