Lýsing
Fljótvirkur háglans fyrir efnameðhöndlað litað hár.
Styrkir hárið, gefur raka og þéttir hártrefjarnar.
Lokar ysta lagi hársins sem gefur því meiri glans og liturinn dofnar síður.
Frábært til þess að hemja úfning og jafna gljúpleika hársins.
Notkun:
Berið í nýþvegið handklæða þurrt hár frá miðju út í enda.
Einn skammtur ef hárið er fíngert, 2 skammtar fyrir lengra eða þykkara hár.
Nuddið inn í hárið í 1-2 mínútur þar til vökvinn breytist í kremkennda áferð og skolið svo vandlega úr.