Lýsing
Tilboðspakki sem inniheldur þrjár vinsælar vörur úr krullulínu Kérastase.
Bain Hydration Douceur – Gentle Hydrating Creamy Shampoo (250ml)
Létt, milt og rakagefandi kremað sjampó auðgað með Manuka hunangi og ceramíði, fyrir allar gerðir af krulluðu & liðuðu hári. Það hreinsar varlega hár og hárvörð og fjarlægir óhreinindi, umhverfisþætti og mótunarvörur, en varðveitir eigin olíur í hársverðinu. Það bætir rakastig án þess að þyngja hárið.
Masque Beurre Haute Nutrition (200ml)
Extra ríkur nærandi hármaski auðgaður með Manuka hunangi og ceramíði fyrir krullað og liðað hár. Rík formúla þess veitir áhrifaríka næringu og styrkir veikt og brothætt krullað & liðað hár og vinnur gegn því að hárið brotni síður. Hárið verður vel nært með góðan raka ásamt að teygjanleiki hársins batnar.
Notkun:
Eftir hárþvott,kreistið umframvatn úr hárinu og berið maskan ríkulega í hárið, magn fer eftir þykkt og sídd.
Gott að bíða 3-5 mín og skolið.
Créme De Jour Fondamentale – Leave-in Treatment (150ml)
Rakagefandi krem sem skilið er eftir í hárinu.
Minnkar úfning og gott til daglegra nota.
Auðgað með Manuka hunangi og ceramíði, fyrir allar gerðir af krulluðu & liðuðu hári.
Þetta ofurlétta og mjúka krem veitir mikinn rak og ver hárið gegn hita allt að 230 ° C.
Kremið dregur úr frizz og varðveitir lögun krulla með því að hjálpa til við að vernda hárið gegn raka allt að 80%.