Lýsing
Cure Densifique er hársvarðarmeðferð fyrir konur sem þjást af hárþynningu. Meðferðin stuðlar að því að viðhalda þéttleika hársins, þökk sé blöndu virkra efna, svo sem Stemoxydine® ásamt Yang complex tækni sem auka umfang og þykkt hársins á einungis einum mánuði og fjölga um 1000 nýrra hára á þremur mánuðum.
Hárið verður fimm sinnum sterkara og teygjanleiki þess og þykkt þrefaldast. Hentar öllum hárgerðum og eins viðkvæmum hársverði.
*Hin nýja, gelkennda áferð veldur því að blandan smýgur hratt inn í hárið án þess að leka og áferð hársvarðarins er fullkomin.
Dagleg notkun í þrjá mánuði.
- Á einum mánuði: Meiri þykkt og aukinn massi.
- Á þremur mánuðum. 1000 ný hár*, fimm sinnum sterkari og þrisvar sinnum meiri teygjanleiki og fylling.
- Hárið fær sýnilega meiri þykkt.
- Með tímanum er þéttleika hársins viðhaldið.
Lykilinnihaldsefni
- Stemoxydine®: hermir eftir virkni stofnfruma og skapar virkt umhverfi þar sem sofandi hársekkir eru vaktir til lífsins.
- Complex Glycan: Hárið virðist þykkara á ný.
- B3, B5 & B6 vítamín: Auka virkni hársekkjanna.
- Texturizing Polymer: Hafa samstundis áhrif á þéttleika hártrefjanna.
Hvernig skal nota :
1x meðferðaambúla á hverjum degi í 3 mánuði.
Skiptir ekki máli hvort meðferðin sé notuð á morgnana, kvöldin í hreint eða þurrt hárið – aðalmálið er að nota á hverjum degi.
Gott er að skipta hárinu í parta og setja jafnt og þétt í hársvörðinn og nudda varlega með fingurgómunum og dreifa vel í allt hárið með nuddinu.
Gott er að byrja þarf sem hárið er þynnst.
Mikilvægt er að nota hársvarðasjampó Bain Densité línuna sem sérstaklega er hönnuð til að viðhalda og hjálpa meðferðinni eða
Bain Prévention sjampó og maska á meðan á meðferð stendur til að fá sem bestan árangur.