Lýsing
Extra Body Rinse næringin bæði þykkir og nærir hárið og kemur í veg fyrir að hárið skaðist af notkun blásara eða annar hitatækja. Einstök formúla sem gefur hárinu gljáa, leysir flækjur og gerir hárið meðfærilegt. Þó næringin þykki og gefi fyllingu þá þyngir hún ekki hárið og skilar því silkimjúku. Inniheldur ásamt öðrum efnum panthenol sem smýgur djúpt inn í hárið og gefur þannig fyllingu og gerir við það. Hentar vel fínugerðu- og milligrófu hári.
Notkun:
– Berið í hreint rakt hárið.
– Setjið hæfilegt magn í lófann.
– Nuddið í hárið.
– Skolið.