Lýsing
Vilt þú fara alla leið í sjálfbærninni? Þá er A Single Shampoo eitthvað fyrir þig!
Fyrsta 100% kolefnisjafnaða sjampóið okkar! 98,2% innihaldsefni sem brotna niður í náttúrunni og 95% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna.
A Single Shampoo er milt sjampó sem hentar öllum hártegundum og má nota daglega. Það mýkir og eykur teygjanleika hársins og er með 100% náttúrulegan ilm úr ilmkjarnaolíum.
Hægt er að rekja uppruna allra innihaldsefna og er sjampóið 100% kolefnisjafnað, allt frá upphafi framleiðslu og þar til það er komið í hillurnar hér á landi.
A Single Shampoo er tákn ferðalags Davines til að gera betur og vera betri fyrir heiminn.