Lýsing
Frábær tilboðspakki sem inniheldur fjórar vörur fyrir hár sem þarfnast viðgerðar.
Protective Shampoo 300ml
Styrkjandi viðgerðar sjampó sem viðheldur líftíma litaðs hárs. Ríkulega hreinsandi með innihaldsefnum sem vernda hárið gegn skemmdum. Þessi mildi hreinsir dregur burt öll óhreinindi sem og uppsöfnun frá öðrum efnum án þess að hafa slæm áhrif á hárstráið eða hreinsa í burtu hárlitinn. Lokaútkoman er glansandi mjúkt og hreint hár sem er í senn sterkt og heilbrigt.
Protective Conditioner 250ml
Styrkjandi viðgerðar næring sem viðheldur líftíma litaðs hárs. Gefur hárinu mikinn raka og byggir upp þol hársins á hverjum degi án þess að þyngja það.
Protective Shield 100ml
Fullkomin varnarhetja gegn daglegum skaðleika mótunarvara, skaðlegum áhrifum útfjólubláum geisla sem og annari umhverfismengun. Hjálpar til við að verja hárið gegn skemmdum en einnig frábær vörn gegn því að liturinn leki úr. Skilur eftir sig glansandi og heilbrigðara hár. Notist fyrir mótun, styrkir hárið að utan og innan. Frábær vörn gegn hita, uv, og umhverfimengun brotnum endum og litavörn. Gerir hárið 4x sterkara gegn áhrifum hita mótunar.
Protective Masque 150ml
Þessi máttuga heimameðferð sem virkilega endurlífgar og enduruppbyggir hárið með sinni einstöku styrktar og viðgerðarformúlu. Áhrifin? Hárið brotnar síður, meiri vörn gegn hitatækjum og hárið finnur strax fyrir frábærum glans og mýktar eiginleikum maskans.