Lýsing
Wonder Brush flækjuburstarnir eru hannaðir til að fara vel með hár og hársvörð. Sérstakir SmartFlex pinnarnir eru mjög sveigjanlegir og koma í veg fyrir að hárið brotni og endar klofni. Þetta er hárbursti sem ætti að vera til á öllum heimilum og hentar öllum aldurshópum. Hvort sem hárið er stutt eða sítt, hrokkið eða slétt þá er burstinn einstakur. Wonder Brush hentar mjög vel til að greiða bæði blautt og þurrt hár.
Wonders of Iceland flækjuburstarnir henta vel sem tækifærisgjafir bæði fyrir Íslendinga sem og erlenda vini og ferðalanga en einnig sem fallegur og nytsamlegur minjagripur.
Myndin sem prýðir Wonder Brush Vocano sýnir kraftinn í hraungosinu í Fagradalsfjalli.
Ljósmyndari: Andri Jónasson www.andrijonasson.com