MARIA NILA, sem leitar stöðugt leiða til að vinna í meiri átt að sjálfbærri fegurð, tekur hér næsta skref í átt að vinsamlegri veröld með því að kynna nýja þriggja vöru línu – ECO THERAPY REVIVE.  Þessari nýju línu er ætlað að endurlífga hárið með hreinsandi örtækni og jurtapróteinum og er fyrsta Ocean waste línan frá MARIA NILA sem er gerð úr náttúrulegri og lífrænni blöndu og fær vottun frá ECOCERT. Umbúðir þessarrar nýju línu eru einnig úr plasti sem hefur verið endurunnið úr sjónum og eins og með allar MARIA NILA vörur er allt 100% vegan og unnið með dýravernd að leiðarljósi. Þökk sé ECO THERAPY REVIVE gerir MARIA NILA það nú auðvelt fyrir alla að taka skref í átt að vinsamlegri veröld.

REVIVE YOUR HAIR – REVIVE THE NATURE – REVIVE THE OCEAN – REVIVE YOUR CHOICE

REVIVE YOUR HAIR – MEÐ HREINSANDI ÖRTÆKNI
Vörurnar þrjár virka sem þriggja þrepa leið að endurnýjuðu hári með því að hreinsa það fyrst með örtækni, næra það því næst með Aloe vera og að lokum veita því innspýtingu með jurtapróteinum. Ilmur Eco Therapy Revive línunnar einkennist af grænni agúrku, ferskjum og perum.
Allar vörurnar innihalda efni sem auka endingu litar hársins.

INNIHALDSEFNI:

  • ÖRSAMEINDIR – Eco Therapy Revive sjampóið er blandað með örsameindum sem geta auðveldlega sogað til sín olíu, fitu og leyfar af hármótunarefnum. Óhreinindin hreinsast svo með vatni úr hárinu í sameindunum þökk sé leysni sameindanna.
  • JURTAPRÓTEIN – blanda af vatnsrofnum próteinum úr káli, gulrótum og sítrónum sem saman auka raka hársins með því að binda og viðhalda vatni í hárinu. Þar sem þurrt og úfið hár skortir raka mun þessi einstaka blanda veita hárinu næringu og mýkt.
  • HÖRFRÆJAKRAFTUR – þegar litað hár verður fyrir geislum sólarinnar fer það að missa lit sinn sökum sindurefna. Hörfræjakraftur getur dregið til sín sindurefni og er þess vegna kjörið innihaldsefni til að viðhalda frískum og geislandi lit hársins.

REVIVE THE NATURE – VÖRUR VOTTAÐAR AF ECOCERT
ECO THERAPY REVIVE er fyrsta línan frá Maria Nila sem er vottuð af Ecocert. Sú vottun tryggir að vörurnar eru náttúruleg og lífræn blanda sem er framleidd á sjálfbæran hátt með líffræðilegan fjölbreytileika og náttúrulega hagkvæma notkun uppspretta að leiðarljósi.

REVIVE THE OCEAN – ENDURUNNIÐ PLAST ÚR SJÓNUM
Climate verkefnið er forgangsatriði hjá MARIA NILA. Í ECO THERAPY REVIVE eru allir brúsarnir framleiddir að öllu leyti úr endurunnu plasti úr sjónum. Hugmyndin er sú að góðar hárvörur þurfi ekki að vera framleiddar á kostnað umhverfisins.

ECO THERAPY REVIVE SHAMPOO
Mýkjandi og djúphreinsandi sjampó sem er öflugt en um leið milt með örtækni sinni sem fjarlægir óhreinindi auðveldlega og leifar af hármótunarvörum án þess að raska náttúrulegu jafnvægi hársins. Þökk sé nærandi Aloe vera og hörfræjakraftinum sem verndar lit hársins, þá má nota þetta sjampó daglega.

ECO THERAPY REVIVE CONDITIONER
Hárnæring með jurtapróteinum sem koma hárinu í náttúrulegt ástand og hársverðinum sömuleiðis. Þökk sé léttri blöndunni þá verður yfirbragðið og tilfinningin náttúruleg með mýkt en án þess að hárið verði þungt. Höfræjakrafturinn verndar líka litinn og viðheldur honum.

ECO THERAPY REVIVE MASQUE
Djúphreinsandi maski sem nærir hárið og hársvörðinn. Jurtapróteinin byggja upp hárið og minnka ýfni þess og þurrk, svo hárið fær silkimjúkt yfirbragð.

  • Product on sale
    Maria Nila - Revive - Eco Therapy Revive Hair Masque (250ml)
    Maria Nila – Revive – Eco Therapy Revive Hair Masque (250ml)
    kr.4.823
  • Product on sale
    Maria Nila - Revive - Eco Therapy Revive Conditioner (300ml)
    Maria Nila – Revive – Eco Therapy Revive Conditioner (300ml)
    kr.4.123
  • Product on sale
    Maria Nila - Revive - Eco Therapy Revive Shampoo (350ml)
    Maria Nila – Revive – Eco Therapy Revive Shampoo (350ml)
    kr.4.123

Sænska hárvörumerki fagmannsins, MARIA NILA, framleiðir vörur sem eru 100% vegan og unnar með dýravernd að sjónarmiði. Þessar vörur, sem innihalda hvorki súlföt né paraben, eru framleiddar í Svíþjóð og þróaðar út frá kærleika til dýra og umhverfsisins. Þess vegna eru umbúðirnar kolefnisjafnaðar í gegnum PLAN VIVO og allar vörurnar eru vottaðar af PETA, LEAPING BUNNY og VEGAN SOCIETY. Með því að gefa kost á hágæða vörum, gerir MARIA NILA öllum kleift að taka skref í átt að sjálfbærari og vinsamlegri veröld.


Lífsferill hárs er einfaldur, það vex, dettur svo af og nýtt hár tekur að vaxa,:langoftast detta hárin af jafnt og þétt og vaxa sömuleiðis. Hárlosi hægt að skipta í tvennt, það að missa hár og fá það aftur og eða missa hár og fá það ekki aftur sem kallast skallamyndun. Þættir sem ráða hárlosi geta verið margs konar, erfðir, hormónavandamál og öldrun. Eins geta áföll, slys og ýmsir sjúkdómar og meðferðir við þeim, t.d. geisla- eða lyfjameðferðir valdið hárlosi. Við mikil veikindi eða álag geti hárlos orðið meira en ella. Hárlosið verður þó oft ekki beint í kjölfar veikindanna, heldur þremur til sex mánuðum seinna. Öðru máli gegnir ef hárlos dreifist ójafnt um höfuðið, þannig að há kollvik myndast eða skallatungl. Í þeim tilvikum ætti viðkomandi að leita læknis og ef um konu er að ræða að láta athuga hormónastarfsemina.

Hárlos getur líka tengst lífsstíl og svo tímabilum lífsins eins og meðgöngu. Hárið er oft óvenju þykkt og ræktarlegt á meðgöngu vegna hormónabreytinga en um það bil hálfu ári eftir fæðingu verður mikið hárlos og hárið getur orðið rytjulegt. Það góða við þessa tegund af hárlosi er að það er tímabundið.

Hægt að að örva hárvöxt

Það er ýmislegt sem hægt sé að gera til að örva hárvöxt. Hágæða hárvörurnar Kérastase Paris sem eru í eigu L’Oréal Group setti nýverið á markað sérhannaða línu sem hjálpar til við að sporna gegn hárlosi. Línan samanstendur af sjampói, næringu, djúpnæringu og sex vikna meðferðardropum sem eru notaðir daglega heima fyrir til að vinna á hárlosi og styrkja hár og hársvörð. Einnig inniheldur línan hitavörn til að verja hárið ásamt fagmeðferð sem hægt er að fá á Kérastase hárgreiðslustofum þar sem hár og hársvörður er hreinsaður vel með sérstöku dufti sem blandað er í sjampó til að ná öllum umhverfisþáttum, efnaleifum og þess háttar úr svo meðferð geti hafist.“

Hársvarðarmeðferðir Cure Densifique fyrir karlmenn sem hafa hár sem er farið að þynnast stuðlar að því að viðhalda þéttleika hársins, þökk sé blöndu virkra efna sem auka umfang og þykkt hársins á einungis einum mánuði. Hárið verður fimm sinnum sterkara og teygjanleiki þess og þykkt þrefaldast.

  • Quickview
    kr.7.990
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Densifique – Bain Densité Homme – Daily Care Shampoo (250ml)

    kr.7.990
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.34.990
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Densifique – Cure Densifique Homme – Scalp Treatment

    kr.34.990
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.9.990
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Densifique – Fondant Densité – Conditioner (200ml)

    kr.9.990
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.12.990
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Densifique – Masque Densité – Hair Mask (200ml)

    kr.12.990
    Setja í körfu

Yfir 88% kvenna segjast hafa fundið fyrir hárlosi á lífsleiðinni og af þeim eru 40% um 35 ára.* Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo ehf heildsölu segir að tilfinningarnar sem kvikna hjá konum við hárlos séu margvíslegar, þær algengustu eru áhyggjur.

,,90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki en það er þó hægt. Spurðar af hverju voru sögðu konurnar margs konar tilfinningarnar sem fylgdu hárlosinu, sumar sögðust leiðar, aðrar fundu fyrir kvíða og áhyggjum og skammast sín og margar vissu ekki hvert best væri að leita og fá upplýsingar.“

En hvað er hárlos?

,,Lífsferill hárs er einfaldur, það vex , dettur svo af og nýtt hár tekur að vaxa. Langoftast detta hárin af jafnt og þétt og vaxa sömuleiðis. En hárlos er almennt hægt að skipta í tvennt, það að missa hár og fá það aftur og eða missa hár og fá það ekki aftur, það kallast skallamyndun. Þættir sem ráða hárlosi geta verið margs konar s.s. erfðir, hormónavandamál og öldrun. Eins geta áföll valdið (skyndilegu) hárlosi, slys og ýmsir sjúkdómar og meðferðir við þeim, t.d. geisla-eða lyfjameðferðir. Við mikil veikindi eða álag getur hárlos orðið meira en ella. Þetta sést hjá þeim sem hafa lent í því að veikjast alvarlega. Hárlosið verður þó oft ekki strax í kjölfar veikindanna, heldur 3-6 mánuðum seinna. Dæmi um kvilla sem geta valdið hárlosi er járnskortur og truflun á starfsemi skjaldkirtils. Öðru máli gegnir ef hárlos dreifist ójafnt um höfuðið, þannig að há kollvik myndast eða skallatungl. Í þeim tilvikum ætti viðkomandi að leita læknis og ef um konu er að ræða að láta athuga hormónastarfsemina. Þá geta sum lyf haft hárlos sem aukaverkun. Hárlos margra tengdist lífsstíl og öðrum tengdum hlutum eins og meðgöngu,“ segir Fríða Rut og heldur áfram.

,,Hárið er oft óvenju þykkt og ræktarlegt á meðgöngu en u.þ.b. hálfu ári eftir fæðingu verður mikið hárlos og hárið rytjulegt. Það eru breytingar á hormónum og þá sérstaklega estrogeni sem hefur þau áhrif að það eru engin hár sem falla heldur bætast í sífellu við ný hár í hársverðinum. Eftir meðgöngu ganga þessi hormón til baka og við missum mikið af meðgönguestragoninu. Það góða við þessa tegund af hárlosi að það er tímabundið.“

Hægt að örva hárvöxt

Fríða Rut segir ýmislegt hægt að gera til að örva hárvöxt.

,,Hágæða hárvörurnar Kérastase Paris sem eru í eigu L´oreal group setti nýverið á markað sérhannaða línu sem hjálpar til við að sporna gegn hárlosi. Línan samanstendur af sjampó, næringu, djúpnæringu og 6 vikna meðferðadropum sem notað er heima fyrir til að vinna á hárlosi og styrkja hár og hársvörð sem er það mikilvægasta í meðferðinni. Droparnir eru notaðir daglega og settir í hársvörðinn til að koma í veg fyrir að kollagen herðist og að hárið falli. Einnig inniheldur línan hitavörn til að verja hárið ásamt fagmeðferð sem hægt er að fá á Kérastase hárgreiðslustofum þar sem hár og hársvörður er hreinsaður vel með sérstöku dufti sem blandað er í sjampó til að ná úr hárinu öllum umhverfisþáttum, efnaleifum og þess háttar til að hefja hárlosarmeðferð. Rannskóknardeild Kérastase sýndi þær niðurstöður að með því að meðhöndla hárlos og nota línuna saman fundu 93.3 % þátttakenda mikinn mun. Hárið brotnaði síður og hárlos varð minna.“

Fríða Rut segir að gott sé að nota sérstaka sérhannaða línu sem er mild,  með það í huga að vinna á hárlosi og til að draga úr því eins og hægt er. Mikilvægt er að taka inn vítamín og steinefni sem örva hárvöxt.

„Eitt af því mikilvægasta sem hárið þarf er bíotín til að halda bæði húð og hári heilbrigðu en bíótín er þekkt fyrir að örva hárvöxt,“ segir Fríða. „Þá er kísill mikilvægt steinefni fyrir hárið og einnig hafa Kollagen duftblöndur reynst vel. Fitusýrur fyrirbyggja þurrk bæði í hársverði og hárinu sjálfu og B-vítamín eru mikilvæg til að halda hárvexti og hári heilbrigðu. Við hárlosi mæli ég með innstöku Sugarbearhair sem er með hátt hlutfall bíótíns ásamt öllum þeim vítamínum sem þarf til að stuðla að heilbrigðu hári.“

*Rannsókn gerð í ágúst 2019 af Loreal R&I og náði til kvenna í 9 löndum.

  • Quickview
    kr.7.990
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Genesis – Bain Hydra-Fortifiant – Fortifying Shampoo

    kr.7.990
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.7.990
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Genesis – Bain Nutri-Fortifiant – Fortifying Shampoo

    kr.7.990
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.9.490
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Genesis – Défense Thermique – Fortifying Blow-Dry Fluid

    kr.9.490
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.9.990
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Genesis – Fondant Renforçateur – Fortifying Conditioner

    kr.9.990
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.13.490
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Genesis – Masque Reconstituant – Hair Mask

    kr.13.490
    Setja í körfu
  • Quickview
    kr.13.490
    Á lager
    Setja í körfu

    Hárvörur

    Kérastase – Genesis – Sérum Fortifiant – Fortifying Serum

    kr.13.490
    Setja í körfu

Maria Nila snyrtitöskurnar eru að öllu leyti gerðar úr endurunnum efnum og koma í takmörkuðu upplagi. Töskurnar koma í sex mismunandi útfærslum.

Maria Nila hárumhirða er þróuð til að vera mild bæði fyrir hárið og umhverfið. Í þeim tilgangi að hampa hugsjóninni um sjálfbæra fegurð tekur Maria Nila næsta skref í átt að vinsamlegri veröld með því að kynna snyrtitöskurnar um vor/sumar 2020.

Töskurnar í ár koma í takmörkuðu upplagi og í sex ólíkum litum, hver og ein þeirra með sínum einkennum í Care&Style.
Þessar sjálfbæru töskur eru búnar til úr 100% náttúrulegum efnum og innihalda fjórar vörur, sjampó og hárnæringu, hvort um sig bæði í venjulegri stærð og ferðastærð.

Hönnunin á töskunum er unnin með stíl og einfaldleika í huga en einnig sjálfbærni og endingu. Valið um skæra liti er til að veita hverjum degi aðeins meiri orku & gleði. Gegnsætt netið er gert úr rPET sem eru endurunnar plastflöskur. Þar sem plast er vinsælt efni er endurvinnsla þess góð leið til að veita gömlum vörum nýtt líf auk þess sem auðvelt er að þrífa yfirborðið og halda því fersku.

Allar Maria Nila vörur eru 100% vegan, framleiddar með dýravernd að sjónarmiði og innihalda hvorki paraben né súlföt. Framleiðslan fer fram í Svíþjóð og þar eru tryggð heilbrigð vinnuskilyrði og gæða innihaldsefni sem pakkað er í vottuðu umhverfi.

Með þessum LIMITED fallegu töskum frá Maria Nila. Þú borgar fyrir sjampó og næringu og færð FRÍTT með mini vörur og tösku. Takmarkað upplag!

Shampoo 350 ml, Næring 300 ml

Ferðastærð shampoo 100 ml, næring 100 ml


Naturaltech frá davines samanstendur af níu öflugum vörulínum sem eru sérsniðnar til að taka á vandamálum í hári og hársverði.

Hvort sem þú ert að fást við feitan hársvörð, flösu eða hárlos af völdum hormónabreytinga ættir þú að finna lausnina í Naturaltech. Þar eru sjálfbær fegurð og nýjasta tækni sameinuð í öflugum vörum sem takast á við öll helstu vandamál í hári og hársverði og hjálpa til við að endurheimta jafnvægi og heilbrigði.

ÖFLUGAR MEÐFERÐIR

Naturaltech tekst á við ýmis vandamál í hári og hársverði, svosem flösu og hárlos, með meðferðum sem bæði vinna á vandamálinu og koma í veg fyrir að það komi aftur.

HEILSA 

Línur eins og Renewing (sem vinnur gegn ótímabærri öldrun) og Well-Being (fyrir allar hárgerðir) eru hannaðar til að viðhalda langtíma heilbrigði hársins.

VIRKAR FORMÚLUR

Naturaltech formúlurnar innihalda virk, líffræðileg efnasambönd sem er aðeins að finna í plöntum. Öll hafa þessi efnasambönd sína sérstöku bólgueyðandi og/eða andoxandi eiginleika sem hjálpa til við að viðhalda heilbrigði hárs og hársvarðar.

NATURALTECH LÍNURNAR

Energizing

Vörur sem örva viðkvæman hársvörð og auka blóðflæði til hára sem losna auðveldlega. Fyrirbyggjandi meðferð gegn ýmiss konar hárlosi. Vörurnar í Energizing línunni innihalda Hair Energy Complex sem hefur bólgueyðandi virkni, minnkar framleiðslu á sebum og viðheldur raka í hársverði. Sjampóið, gelið og tónikið í línunni innihalda einnig phytoceuticals úr koffíni en koffín örvar efnaskipti í hársverðinum.

  • Davines - Naturaltech - Energizing Shampoo (250ml)
    Davines – Naturaltech – Energizing Shampoo (250ml)
    kr.4.490
  • Davines - Naturaltech - Energizing Gel
    Davines – Naturaltech – Energizing Gel
    kr.5.890
  • Davines - Naturaltech - Energizing Superactive
    Davines – Naturaltech – Energizing Superactive
    kr.12.690

Nourishing

Nærandi og uppbyggjandi vörur fyrir þurran hársvörð og þurrt, brothætt og skemmt hár. Vörurnar í Nourishing línunni innihalda Vegetal Keratin sem unnið er úr hrísgrjónum og amínósýrur sem í sameiningu vernda viðkvæmt hár sem brotnar auðveldlega. Næringin, maskinn og Hair building pak innihalda einnig Biacidic Bond Complex sem bæði vinnur á skemmdum í hári og byggir það upp.

  • Davines - Naturaltech - Nourishing Shampoo
    Davines – Naturaltech – Nourishing Shampoo
    kr.4.490
  • Davines - Naturaltech - Nourishing Vegetarian Miracle Conditioner
    Davines – Naturaltech – Nourishing Vegetarian Miracle Conditioner
    kr.4.790
  • Davines - Naturaltech - Nourishing Vegetarian Miracle Mask (250ml)
    Davines – Naturaltech – Nourishing Vegetarian Miracle Mask (250ml)
    kr.5.490

Renewing

Vörur sem viðhalda heilbrigði hárs og hársvarðar og vinna gegn ótímabærri öldrun. Renewing vörurnar eru góðar til að nota á milli kúra og meðferða í öðrum Naturaltech línum og til að viðhalda virkni þeirra. Allar vörurnar í Renewing línunni innihalda Hair Longevity Complex en það er hannað til að vernda gegn þeim þáttum sem valda ótímabærri öldrun í hári og hársverði.

  • Davines - Naturaltech - Renewing Shampoo
    Davines – Naturaltech – Renewing Shampoo
    kr.4.690
  • Davines - Naturaltech - Renewing Conditioning Treatment
    Davines – Naturaltech – Renewing Conditioning Treatment
    kr.4.990

Replumping

Rakafyllandi, þéttandi og mýkjandi vörur sem gefa hárinu aukinn glans og henta fyrir allar hárgerðir. Allar vörurnar í Replumping línunni innihalda plómu phytoceuticals – andoxandi efni sem vinnur gegn sindurefnum og eykur teygjanleika hársins.

  • Davines - Naturaltech - Replumping Conditioner
    Davines – Naturaltech – Replumping Conditioner
    kr.3.990
  • Davines - Naturaltech - Replumping Shampoo
    Davines – Naturaltech – Replumping Shampoo
    kr.4.490
  • Davines - Naturaltech - Replumping Hair Filler Superactive
    Davines – Naturaltech – Replumping Hair Filler Superactive
    kr.5.690

Purifying

Róandi og sótthreinsandi vörur sem meðhöndla og fyrirbyggja feitan eða þurran hársvörð sem veldur flösu. Vörurnar í Purifying línunni innihalda phytoceuticals úr túnfíflum sem hafa andoxandi og bólgueyðandi virkni. Spoex, samtök psoriasis- og exemsjúklinga, mæla með Purifying línunni fyrir þá sem kljást við psoriasis eða exem í hársverði.

Purifying
  • Davines - Naturaltech - Purifying Shampoo (250ml)
    Davines – Naturaltech – Purifying Shampoo (250ml)
    kr.4.490
  • Davines - Naturaltech - Purifying Gel (150ml)
    Davines – Naturaltech – Purifying Gel (150ml)
    kr.5.890

Rebalancing

  • Davines - Naturaltech - Rebalancing Shampoo (250ml)
    Davines – Naturaltech – Rebalancing Shampoo (250ml)
    kr.4.490

Rebalancing sjampóið hentar vel fyrir feitan hársvörð en það kemur jafnvægi á hársvörðinn til að fyrirbyggja umfram framleiðslu á sebum. Sjampóið inniheldur phytoceuticals úr sítrónum sem hafa öfluga bólgueyðandi virkni.

Detoxifying

Endurnýjandi og afeitrandi vörur fyrir hársvörð og hár sem er viðkvæmt vegna umhverfisþátta. Vörurnar í Rebalancing línunni innihalda phytoceuticals úr ætisþistlum sem hafa öfluga andoxandi virkni.

  • Davines - Naturaltech - Detoxifying Scrub Shampoo (250ml)
    Davines – Naturaltech – Detoxifying Scrub Shampoo (250ml)
    kr.4.490

Calming

Róandi vörur fyrir viðkvæman hársvörð. Vörurnar í Calming línunni innihalda phytoceuticals úr bláberjum sem hafa öfluga bólgueyðandi virkni.

  • Davines - Naturaltech - Calming Shampoo (250ml)
    Davines – Naturaltech – Calming Shampoo (250ml)
    kr.4.490
  • Davines - Naturaltech - Calming Superactive
    Davines – Naturaltech – Calming Superactive
    kr.7.890

Well-Being

Rakagefandi og verndandi vörur fyrir allar hárgerðir. Vörurnar í Well-being línunni innihalda phytoceuticals úr sólhatti sem hafa öfluga andoxandi virkni.

  • Davines - Naturaltech - Well-Being Conditioner
    Davines – Naturaltech – Well-Being Conditioner
    kr.3.990
  • Davines - Naturaltech - Well-Being Shampoo
    Davines – Naturaltech – Well-Being Shampoo
    kr.4.490